Þín .. Gunnhildur -

Það er alltaf dálítið kraftaverk þegar eitt hjarta fyllist ástúð í garð annars

28.11.2008 09:20:00 / global

Prófatíð :)

Við hjónin erum að detta í ágætis prófatíð núna, erum reyndar búin að taka ágætistörn í því bara í nóvember, en við klárum bæði fyrir afmælið hennar Júlíu Lífar.

Við erum byrjuð að hengja upp jólaskrautið og jólaljósin, nema okkur langaði til að setja hvítar seríur í alla glugga svo Gunnsteinn fór og ætlaði að bjarga því... þegar hann reiknaði að þetta væri í kringum 20.kjell þá var ég nú ekki alveg á því sko, við eigum nefnilega rauðar seríur frá "rauða tímabilinu" og þær eru í góðu lagi hjá okkur... Það eru on-going samningsviðræður um þetta eins og er.  Merkilegt því ég er jólabarnið!!

Svo er ég nú búin að sjá það út að mig vantar skó (já, mig vantar þá). Rauða háhæla eða flatbotna ballerínu, og svo eina brúna... og þá vantar mig stígvél sem eru með pínulitlum hæl...   já ókei, kannski vantar mig ekki allt en mig langar í ;)
Jóna skrifaði
hæhæ já það er sko aldeilis margt sem að mann langar ógeðslega mikið í, stundum það mikið að maður sannfærir sjálfan sig um að mann vanti þennan tiltekna hlut! er maður klikk eða hvað :) Það er líka margt jólaskraut sem mig langar að kaupa í nýja húsið en bíð þolinmóð þangað til í jan þegar allt fer á útsölu :) Gangi ykkur vel í prófunum!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Dagsetning
15. mars 2010
-Skunkar-
-Lagasnápar-