24.07.2008 10:20:09 / global
Er hér enn og er að athuga hvernig ég set inn myndir
Ég er að skoða hvernig ég get sett inn myndir því ég er að pæla í að setja kannski inn svona fyrir og eftir myndir... en það er kannski ekki sniðugt því ég vil auðvitað ekki að hver sem er geti séð það.
Kannski ég haldi myndum bara til haga annarsstaðar eins og við höfum verið að gera.
Anywho, hér eru allir í sumarfríi og mikið búið að vera að gera. Ég var með báðum skottunum mínum í sumarfríi í 2 vikur og svo kom Gunnsteinn minn í frí með okkur. Við erum búin að vera töluvert mikið úti í sandkassa, á svölunum, úti á róló og í erum að hafa okkur í að fara miklu meira í sund og þess vegna hef ég lítið verið á netinu.
Ég verð duglegri að blogga fljótlega því ég á stutt eftir í fæðingarorlofinu og um leið og ég fer að fara að heiman og hafa augnablik til að kíkja í tölvuna án þess að hafa aukafingur sem ýta á esc og slökkva í gríð og erg á tölvunni þá ætti þetta að ganga betur.